Myndasíða Gylfa Blogg, Photos, Travelstories, videos |
|
29.12.2007 20:40Fjórhjólaflipp á Hellisheiði 29.12.2007Jæja komst loksins á fjórhjólið í smátíma amk. Kíkti með Einari og Dísu uppá Hellisheiði í dag í ca. 4 tíma. Við Einar keyrðum úr bænum og hittum Dísu svo við Litlu kaffistofuna. Þá var brunað eftir línuveginum uppað virkjun. Þokkalegur snjór var og hélt hann okkur ágætlega en við lentum í smá basli inní Innstadal og fórum aðeins hálfa leið inn að skála, þar sem góðar líkur voru á að sitja fastir þar inni. Kíktum svo aðeins eftir þúsund vatna leiðinni en snérum við og fórum til baka með smá stoppi í Dalakoti. Við festum okkur auðvitað nokkuð oft til að tryggja "funnið" og kom þá að góðum notum að hafa spil á hjólunum. Í bakaleiðinni frá Litlu kaffistofunni í bæinn tókum við Einar svo aðeins extra á því rétt við Sandskeið og náðum að drulla okkur hressilega út og enduðum svo með því að spila hjólin upp svaka brekku með Stein sem tryggingu. Fínn skreppur og gott að komast aðeins í öðruvísi "action" en göngurnar sem standa þó alltaf fyrir sínu. ![]() Flettingar í dag: 710 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 687 Gestir í gær: 46 Samtals flettingar: 411726 Samtals gestir: 47844 Tölur uppfærðar: 3.6.2025 10:07:32 |
Eldra efni
TenglarUm mig Nafn: GylfiHeimilisfang: GrafarvogurinnStaðsetning: ReykjavikUm: Uppalin í Mosó og GrafarvogiUppáhalds bíómynd(ir): Dances with wolfesUppáhalds tónlist: QueenUppáhalds manneskjur: Strákarnir mínirUppáhalds matur: Samloka með skinku osti og tómatssósu |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is